Wednesday, May 28, 2008

Eldað með rokkstjörnum


Fyrir þau ykkar sem eruð áhugafólk um bæði mat og rokktónlist (eins og ég) er til hin fullkomna síða sem sameinar þetta tvennt... Cooking With Rockstars! Jessss. Þetta virkar þannig að það er tekið matartengt viðtal við tónlistarmann og svo lætur hann frá sér eina uppskrift sem er birt með viðtalinu. Fullkomið! Nýjasta myndbandið er með Will Sheff og Jonathan Meiburg úr Okkervil River og þarna má líka finna klippur með Rufus Wainwright, Jack Black, Britt Daniel úr Spoon og mörgum fleiri. Já og hversu mikið meira er ég orðin skotin í Will Sheff eftir að hafa heyrt hann tala um carpaccio og sjá að uppskriftin hans er að "Chocolate Caramel Tart with Sea Salt"?! OMG, be still my beating heart.

1 comment:

Krissa said...

Sweet beJEBUS ertu ekkert að grínast með fullkomnustu og bestu hugmynd geimsins? Góð tónlist, sætir strákar og awesomíus matur? Jimminy! Styð þetta heilshugar!!! ;)