Monday, March 19, 2007

Viðbótarregla 1a.


Að gefnu tilefni vil ég ítreka sérstaka viðbótarreglu sem gildir fyrir topp 5 lista vikunnar.

Viðbótarregla 1a: Ekki er undir nokkrum kringumstæðum leyfilegt að setja lag á listann sungið af Mick Hucknall. Þetta á bæði við um lög flutt af honum einum, sem hluti af hljómsveitinni Simply Red eða í samstarfi með öðrum flytjendum.

Ég vil reyndar leggja til að þessi regla gildi um alla lista sem birtir verða á þessari síðu nema viðfangsefnið sé neikvætt, s.s. "topp 5 verstu lög allra tíma", "topp 5 lög sungin af asnalegu fólki", "topp 5 lög til að nota sem pyntingaraðferð" etc. Sé sú tillaga samþykkt mun reglan fá númerið 4. Kosning í athugasemdakerfi.

5 comments:

Vignir Hafsteinsson said...

Viðbótarregla samþykkt af minni hálfu.

Krissa said...

tótó samþykkt af minni hálfu! :D
Mér finnst reglan frábær og styð hana sem allsherjarreglu (sbr. 'viðbótarregla 1a')!!! :D

Erla Þóra said...

Viðbótarreglan er klárlega samþykkt einróma!

Kristín Gróa said...

Tillagan telst samþykkt svo viðbótarregla 1a mun nú verða regla 4.

Krissa said...

SKVÍT! :D