Tuesday, May 29, 2007

Matthew Dear


Það er nú ekki ætlun mín að drekkja ykkur í danstónlist en ég er bara svo heilluð af laginu Pom Pom með manni að nafni Matthew Dear að ég get ekki hamið mig. Ég veit svo sem ekkert hvort þetta flokkast undir danstónlist (enda er ég algjörlega vonlaus þegar kemur að því að flokka tónlist) en platan Asa Breed kemur allavega út 5. júní og það sem ég hef heyrt af henni lofar mjög góðu. Mér finnst þetta í raun vera dálítið í ætt við Caribou svo ef þið fílið hann þá er um að gera að tékka á þessu.

Matthew Dear - Pom Pom

1 comment:

Anonymous said...

GAAAH! Caribou er æði pæði! Maaan hvað ég ætla að tékka á þessu :D