Thursday, May 31, 2007

Næsti listi...


Jæja gott fólk, það verður aldeilis þrusulisti á morgun! Í þetta sinn ætlum við nefnilega að lista upp "guilty pleasures" eða tónlistarskömm okkar. Já við munum gangast við lögunum sem við vitum að eru hallærisleg en getum bara ekki neitað okkur um að hlusta á.

Ber einhver leynilega ást í brjósti til Michael Bolton? Er einhver veikur fyrir ljúfum klarínettutónum Kenny G? Kveikir Shania Twain í karlmönnunum og Garth Brooks í okkur stelpunum? Það er aðeins ein leið til að komast að því...

2 comments:

Anonymous said...

Bara svo þú vitir það þá spilar Kenny sko ekki á klarinett þarna...heldur sassamófón...samkynhneigðan reyndar

Kristín Gróa said...

Haha já það er rétt! Þú sérð bara hvað ég er mikill aðdáandi hans, veit ekki einu sinni á hvað hann spilar :D