Thursday, September 6, 2007

Flight of the Conchords

Einir skemmtilegustu þættir sem hafa komið í sjónvarp síðustu misseri eru þættirnir Flight of the Conchords um samnefnda hljómsveit. Flight of the Conchords er nýsjálensk hljómsveit sem er fjórða vinsælasta folk hljómsveit Nýja-Sjálands. Þeir voru þriðja vinsælasta en tribute hljómsveitin Light of the Conchords sló þeim við.

Flight of the Conchords samanstendur af félögunum Bret McKenzie og Jemaine Clement sem spila frábær lög með húmorískum texta. Engin tónlistarstefna er þeim ofvaxin og taka þeir allt frá rokki til raps til reggae til 80's synthapopps. Eftir frábæra fyrstu seríu á HBO (og önnur á leiðinni) eru þeir komnir á samning hjá Sub Pop og kemur plata frá þeim í janúar næstkomandi. EP plata kom á dögunum og læt ég fylgja með tvö lög þaðan. If You're Into it er rómantískt lag um vandræðaganginn sem er oft í byrjun sambanda þar sem maður veit ekki alveg hvað hinn aðilinn vill. The Most Beautiful Girl in the Room er ástarsöngur til fallegustu stelpunnar í herberginu og er hér í boði í live útgáfu en drengirnir eru einmitt mjög sterkir á þeim vettvangi og eru hátt á mínum lista yfir bönd sem ég vil sjá live.
Flight of the Conchords - If You're Into it
The Most Beautiful Girl in the Room

Svo fylgja hér nokkur vídjó úr þáttunum:
Lagið um David Bowie (heill þáttur var tileinkaður meistara Bowie)
Rapplagið
She's so hot! BOOM!

og svo drengirnir live:
Business Time
The Humans are Dead

2 comments:

Krissa said...

kannski fallegust, kannski ekki...allavega í top3 ;P

Erla Þóra said...

HAhahahahahaha!!