Monday, September 17, 2007

Næsti listi: Til hamingju við!


Það vill svo ótrúlega skemmtilega til að við frænkurnar sem skrifum á þessa síðu eigum allar þrjár afmæli á innan við viku og nú er sú vika runnin upp! Krissa verður 25 ára á morgun, ég verð 26 ára á föstudaginn og Erla Þóra verður 23ja ára á sunnudaginn. Við ætlum í fyrsta skipti (en vonandi ekki það síðasta) að halda upp á afmælin okkar saman með einu svaka partýi um helgina og til að komast í enn betri stemningu fyrir það ætlum við að telja upp topp 5 afmælispartýlög næsta föstudag. Húrra fyrir okkur!

Það væri bara óskandi að Jack Black kæmi í okkar afmæli...

2 comments:

Krissa said...

víjjj afmæli! afmæli afmæli AFMÆLI!

Ég er að vinna í að fá Jack Black...spurning um að reyna að fá 2 fyrir 1, Will Ferrell með hárið með? ;)

Erla Þóra said...

Vú-húúúúú!
Þetta verður svo gaman :)

1 dagur í Krissu afmæli
4 dagar í Kristínar afmæli
5 dagar í afmælisveislu
6 dagar í mitt afmæli!