Monday, June 11, 2007

Justice


Þetta franska elektró dúó á víst að vera það allra heitasta þessa dagana. Fyrsta platan þeirra kemur út í dag og það er að byggjast upp þokkalegt hype í kringum þessa gaura. Þetta hljómar ágætlega og ætti svo sem að fá fólk til að hrista skankana þó það risti ekki sérlega djúpt. Myndbandið er nokkuð töff en ég er nú ekkert að missa mig yfir þessu samt... hvað finnst ykkur?

Justice - D.A.N.C.E.

2 comments:

Vignir Hafsteinsson said...

Þetta er allt í læ en mér finnst eins og að ég hafi heyrt þetta áður, and not in a good way.

Myndbandið er geðveikt svalt samt.

Anonymous said...

Það er til önnur útgáfa af þessu lagi og þá kallast það B.E.A.T og það er miklu dansvænna að mínu mati. Gúglið það og tjekkið á því.

Óttar