Friday, June 15, 2007

Topp 5 mest spennandi Glastó moment - Zvenni

Keypti mér hljómflutningssamstæðu fyrir fermingarpeningana mína. Akai græjur með útvarpi, tvöföldu kassettutæki og fyrsta geislaspilaranum sem kom inn á heimili fjölskyldunnar. Stuttu seinna uppgötvaði ég Tommy með The Who. Lagði þá Guns´n Roses, Metallicu og Now 24 á hilluna. Seinna náði ég mér í fleiri plötur, The Singles, A Quick one, Who sell out, Who´s next, Quadrophenia, My Generation, Live at Leeds og fleiri.

1921
Pictures of Lily
Tattoo
Baba´O Riley
A Quick One, While He´s Away

1 comment:

Kristín Gróa said...

Það er gott að þú veist hvað þér líkar! :)