Dramatískasta lag síðari tíma... og gítarsólóið toppar það alveg. Sé alveg hvernig hann stendur við þverhnípið með annan fótinn á gróthnullungi, hallar sér aftur og hefur gítarinn til himins.
Ég sé hana nú reyndar frekar fyrir mér standa uppi á heiði heldur en við þverhnípi en hún er alveg pottþétt í síðum hvítum kjól með hárið flaksandi í storminum.
Ef það er einhver sem stendur við þverhnípi og syngur upp í storminn eftir tilfinningaþrunginn dag þá er það Bonnie Tyler. Það skemmir heldur ekki fyrir að þetta lag minnir mig á Heiðu vinkonu mína sem syngur þetta alltaf með svo miklum tilburðum og handahreyfingum að það eykur enn á drama lagsins.
Ég eins og allt of margir á mínum aldri heyrði þetta lag í fyrsta sinn sem rapp með viðlagið eitthvað í líkingu við Ghetto Superstar... that is what you are.... Þvílík misþyrming. Já en ég veit að þetta er nett hallærislegt lag en mér finnst það samt alveg æði. Ég er líka svoddan sökker fyrir hallærislegheitum.
Á einhvern hátt er alveg rökrétt að Peter Gabriel og Kate Bush hafi tekið upp lag saman. Lagið er ofboðslega fallegt og myndbandið mjög eftirminnilegt í einfaldleika sínum.
Ég veit ekki hvað gengur að mér í dag, ég er svo dofin og syfjuð að það mætti halda að mér hafi verið byrlað eitthvað. Ég svaf samt algjörlega út og byrjaði svo daginn á allbran, tómatsafa og lýsi... mér finnst satt að segja ekki sanngjarnt að ég skuli vera vönkuð eftir svo heilbrigða byrjun á deginum. Þar sem markmið dagsins er að reyna að hressa mig við þá verður boðið upp á hressandi tónlist í dag.
We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too. All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us and we will remove it immediately.
Viltu vera gestalistamaður?
Ef þú hefur góða hugmynd að lista eða vilt vera með í lista sem við tilkynnum, sendu okkur þá línu á toppfimmafostudegi (hja)gmail.com og fáðu að vera memm einn föstudag!
Reglur
1. Bannað að bora í nefið
2. Setja þarf inn listann hér á síðunni kl. 23:59 á hverjum föstudegi
3. Undir engum kringumstæðum má ræða lista vikunnar við neinn af hinum höfundunum fyrir kl. 23:59 á föstudegi
4. Fylgja þarf reglunum sem settar eru fram um topp 5 listann hverju sinni
5. Ekki er undir nokkrum kringumstæðum leyfilegt að setja lag á listann sungið af Mick Hucknall