Gæsahúð með engum fjöðrum, jakk. Ég nennti ekki að fara að leita eftir kjánahrollslögum, en ég hef sjaldan fengið jafn mikinn kjánahroll og þegar ég sá þetta.
ALLAVEGA!
Hér skulum við nú samt hlusta á eitthvað alminnileght.
Í útsetningu Come Shine öðlast þetta margspilaða lag glænýtt líf. Píanóþrástefsfílingurinn stelur senunni að einhverju leyti, risið í laginu er ótrúlega vel presenteraður, hlusta skal í háu volumi í góðum græjum. Fann diskinn aftur eftir nokkurn tíma og hlustaði á í bílnum og bíllinn fékk vængi og ég sveif yfir götunni...
Mestu gæsahúðina fæ ég þó þegar Mánar taka þetta lag og pabbi minn öskrar í lokin. Oh my God!!
j) Where Do I Go From Here - The Carpenters
k) Perfect Strangers - Deep Purple
Að spila þetta lag live með góðum undirtektum áhorfenda fær meira að segja rökuð hár til að rísa.Svolítið öðruvísi gæsahúð, en að spila þetta á blasti í bílnum (ég bjó sko einu sinni í bílnum mínum) og syngja með (helst í ástarsorg) er kikk útaf fyrir sig.
k) Perfect Strangers - Deep Purple
Stórt lag. Ris, sig, ris, sig og risa ris með trommubreiki í lokin sem fer alveg með mig og gæsahúðin verður svo mikil að ég fæ fjaðrir og tekst á loft. Heitasta band í heiminum í dag.
2 comments:
Sjitt hvað Furkan er svakalega fyndinn!!!!
HAHA ég hélt fyrst að þú værir á myndinni!!!!
Post a Comment