5. Blur - Yuko & HiroLag af hinni vanmetnu plötu
The Great Escape sem ég gleypti í mig á unglingsárunum, nýbúin að uppgötva
Blur og yfir mig ástfangin af Damon Albarn. Þetta var fyrsta lagið sem ég pikkaði sjálf upp á píanóinu og ég spilaði það svo oft að mér finnst ég vera aftur fjórtán þegar ég heyri þetta.
4. Pixies - U-MassÉg var í hljómsveit á framhaldsskólaárunum og við komum einu sinni fram á kaffihúsakvöldi í skólanum. Ég sá um að lemja kúabjölluna í þessu lagi og fannst ég standa mig nokkuð vel. Það var ekki fyrr en eftir á að einhver sagði mér að ég hefði staðið á bak við sviðstjaldið og það eina sem sást var kúabjallan og einhver dularfull hendi sem sló á hana. Ég fæ enn smá kjánahroll þegar ég heyri þetta lag.
3. Desmond Dekker - The IsraelitesÉg á svo ótrúlega sterka minningu um þetta lag frá Glastonbury 2005. Ég og Krissa vorum að þvælast um markaðssvæðið, hundleiðar á því að vaða drulluna upp að hnjám þegar við ákváðum að skoða inn í einn básinn. Um leið og við stigum inn byrjaði þetta lag að spilast og innan skamms voru allir í búðinni farnir að dilla sér og brosa til hvors annars. Ég man ég hugsaði "ég er á fokking glastonbury... hverjum er ekki sama um smá drullu?".
2. Neil Young - Only Love Can Break Your HeartMinnir mig á háskólaárin og þá sérstaklega þegar ég var að læra undir tölfræðipróf heima hjá bróður mínum og setti
After The Goldrush af rælni í spilarann til að reyna að lina þjáningarnar. Ég hef verið heltekin af
Neil Young síðan.
1. Nouvelle Vague - Too Drunk To FuckÉg bakka um sirka þrjú ár í hvert skipti sem ég heyri þetta lag. Ég og Krissa vorum alltaf á gömlu Freyjunni fyrir djamm (sem var frekar oft) og áður en við fórum út var skylda að hlusta á þetta og
Pornography með
Client. Rosalega margar margarítur og rosalega mikið af góðri tónlist... þetta var æðislegur tími.