Friday, August 29, 2008

Topp 5 kennslulög - Erla Þóra

Sökum þess að innanlandsflug liggur niðri kemur listinn í dag seint inn.

Elton John – Teacher I need you




Kennarar eru svo afskaplega mikilvægir. Þeir hafa heilu barnaskarana sem líta upp til þeirra. Það er hinsvegar verra þegar unglingar verða skotnir í kennaranum sínum. Herra John segir okkur hér frá smáskoti.

Mary Poppins – A spoonful of sugar



Fröken Poppins kennir okkur að með því að smella fingrunum þá er ekkert mál að taka til í herberginu og ef þú skellir einni skeið af sykri með meðalinu þá er það ekkert vont lengur!
“In every job there must be done there is an element of fun. You find the fun and... Snap! The job‘s a game!“

Crosby, Stills & Nash – Teach your children




Alveg með það á hreinu hvernig á að radda þessir félagar.

Black Kids – I‘m not gonna teach your boyfriend how to dance with you




Hérna er svo afskaplega hresst lag sem að fjallar um að kenna ekki. Því að eina ástæðan fyrir því að gaurinn í laginu á einhvern sjéns í gelluna er að kærastinn hennar er alveg mega-sega-lélegur dansari. Skil það. Hef látið minni hluti fara í taugarnar á mér.

Daft Punk – Teachers



Ok.. þetta lag er bara upptalning á nöfnun. En hinsvegar gæti þetta líka verið afskaplega góð mnemonics-tækni. Það er m.a. mjög gott að búa til lag til að muna hluti. Ég er orðin afskaplega góð í að búa mér til svona mnemonics fyrir próf, hjálpar hellings. Kannski þurfti annar hvor Daft Punk gaurinn að fara í próf þar sem hann þurfti að muna öll þessi nöfn. Veit hinsvegar ekki alveg í hvurslags námi maður þarf að muna nöfnin á George Clinton, Bryan Wilson, Armani og Louie Vega, en mér finnst þetta ágætis kenning samt.

4 comments:

Krissa said...

Styð Mary Poppins! Og elska Black Kids lagið. Vúhú! :)

Vignir Hafsteinsson said...

Erla, þú ættir kannski bara að fara út í svona mnenomics bissness. Mæta alltaf með kassagítar til þreyttra stúdenta og búa til hjálpa-þér-að-muna lög á staðnum handa þeim

Krissa said...

Mnemonics er sniðugur business örugglega. Getur pottþétt sett e-n hjúkrunarfræðitwist á það, er það ekki? ;)

Krissa said...

Hey gleymdi alveg að ég á Kate Nash að covera I'm Not Gonna Tech Your Boyfriend How to Dance With You. Frábært lag, Kate Nash og almennilegur framburður á 'dance'. Getur maður beðið um meir? Það er allavega hér: http://www.yousendit.com/download/bVlERE91d0FFd2RFQlE9PQ si tu veux ;)